Velkominn á heimasíðuna mína

Ég heiti Róbert Nökkvi Gunnarsson.



Ég fæddist í Reykjavík þann 3. júlí 2001. Mamma mín heitir Sigríður Dögg Guðjónsdóttir og pabbi minn heitir Gunnar Magnússon.





Ég er 9 ára og er í 4.JAí Foldaslóla. Mér finnst skemmtilegt að fara í golf. Svo finnst mér líka svakalega gaman að lita og teikna og leika mér.



Krabbinn
22. Júní - 22 Júlí

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar
meiga búast við að mörg tár muni falla í bernsku.
Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu
auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli.
Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott.
Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að
rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög
nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll.
Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er
mikilvægt að tala við þau um tilfinningar.
Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í
Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun.
Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist
hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel.
Hann er oft rólegur og hlédrægur
en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er.
Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað
sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt
nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma
gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu.
Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að
segja frá því sem honum mislíkar.
Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf,
veita honum hlýju og gefa
honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa
honum að eiga gæludýr.